Sumarnámskeið 2026

☀️ SUMARNÁMSKEIÐ JÚNÍ – ÁGÚST ☀️

Skapandi og fræðandi sumarnámskeið fyrir börn á aldrinum 7–12 ára sem hafa gaman af föndri og sköpun 🎨

Námskeiðin fara fram í Bastel á Garðatorgi 1, þar sem börnin taka þátt í skipulagðri föndurvinnu undir leiðsögn leiðbeinenda. Unnið er með fjölbreyttan efnivið og mismunandi aðferðir í föndri og einfaldri sköpun.

Við hittumst daglega kl. 9:00–12:00 og vinnum með nýtt verkefni eða tækni á hverjum degi. Lögð er áhersla á að efla sköpunargleði, sjálfstæð vinnubrögð og grunnfærni í meðferð efniviðar.

Á námskeiðinu fá börnin:

🟢leiðsögn í fjölbreyttum fönduraðferðum

🟠tækifæri til að þróa eigin hugmyndir

🔵þjálfun í skapandi vinnuferli og útfærslu verkefna

Hluti námskeiðsins getur farið fram utandyra ef veður leyfir þar sem sóttur er efniviður sem nýttur er í verkefnavinnu ☀️🌻

Öll efni eru innifalin og börnin taka með sér heim þau verk sem þau vinna á námskeiðinu.

Börnin koma með nesti með sér og á föstudegi ljúkum við námskeiðinu með grillveislu 🌭

Verð: 29.900 kr. á viku - 24.900 kr. fyrir 4 daga námskeið

Dagsetningar í boði (kl. 9-12):

Vika 1 - 15. júní - 19. júní (4 daga námskeið - frí 17. júní)

Vika 2 - 22. júní - 26. júní

Vika 3 - 6. júlí - 10. júlí

Vika 4 - 20. júlí - 24. júlí

Vika 5 - 27. júlí - 30. júlí (4 daga námskeið v/Versló)

Vika 6 - 4. ágúst - 7. ágúst (4 daga námskeið v/Versló)

Vika 7 - 10. ágúst - 14. ágúst

Vika 8 - 17. ágúst - 21. ágúst

*Námskeiðin fara fram með fyrirvara um lágmarksþátttöku.

Skráning: bastel@bastel.is