Persónuverndarstefna

Okkur hjá Bastel er annt um persónuvernd þína. Í þessari stefnu útskýrum við á einfaldan hátt hvernig við söfnum, notum og verndum persónuupplýsingarnar þínar.

Ábyrgðaraðili Fyrirtækið er rekið undir Dúttl ehf., kennitala 490125-0270. Samskiptaupplýsingar vegna persónuverndar eru í gegnum netfangið bastel@bastel.is.

Hvaða persónuupplýsingum söfnum við og af hverju? Við söfnum aðeins þeim upplýsingum sem eru nauðsynlegar til að veita þér þjónustu okkar. Þegar þú pantar vöru söfnum við nafni, heimilisfangi, netfangi og símanúmeri til að geta afgreitt og sent pöntunina þína, og þar með efnt samning okkar við þig. Ef þú skráir þig á póstlistann okkar söfnum við netfanginu þínu. Það er eingöngu gert með þínu samþykki til að senda þér fréttir og tilboð, en þú getur alltaf afskráð þig með því að smella á hlekkinn neðst í póstunum. Þegar þú hefur samband við okkur geymum við samskiptin til að geta veitt þér sem besta þjónustu.

Með hverjum deilum við upplýsingum? Við seljum aldrei persónuupplýsingar þínar. Við deilum þeim aðeins með þriðju aðilum sem eru nauðsynlegir til að þjónusta þig. Við deilum nafni, heimilisfangi og símanúmeri með Dropp svo þeir geti afhent pöntunina þína. Þegar þú greiðir með korti fara upplýsingarnar beint í gegnum örugga og vottaða greiðslugátt hjá Valitor. Við geymum aldrei kortanúmerin þín. Vefverslunin okkar er hýst af Shopify.

Vafrakökur (Cookies) Við notum vafrakökur til að vefsíðan okkar virki rétt. Þær hjálpa okkur til dæmis að muna hvað þú hefur sett í körfuna þína. Við notum þær einnig til að safna ópersónugreinanlegum tölfræðiupplýsingum til að bæta síðuna.

Geymslutími gagna Við geymum upplýsingarnar þínar aðeins eins lengi og nauðsynlegt er. Samkvæmt bókhaldslögum er okkur þó skylt að geyma reikningsupplýsingar í 7 ár.

Þinn réttur Þú hefur rétt á að fá aðgang að þínum gögnum, láta leiðrétta rangar upplýsingar, óska eftir að gögnum þínum sé eytt (nema okkur sé skylt að geyma þau samkvæmt lögum) og mótmæla vinnslu gagna sem byggir á samþykki, eins og fyrir póstlista. Til að nýta rétt þinn geturðu sent okkur póst á bastel@bastel.is.

Hafðu samband Ef þú hefur einhverjar spurningar um persónuverndarstefnu okkar, ekki hika við að hafa samband við okkur á bastel@bastel.is.