Viðskiptaskilmálar

Viðskiptaskilmálar Bastel

1. Almennt Bastel er rekið af Dúttl ehf., kt. 490125-0270. Eftirfarandi skilmálar gilda fyrir öll viðskipti milli Dúttl ehf. og viðskiptavina Bastel. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur beggja aðila. Öll verð í vefversluninni eru gefin upp í íslenskum krónum (ISK) og innihalda 24% virðisaukaskatt.

2. Verð og pantanir Öll verð eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur og geta breyst án fyrirvara. Bastel áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða ef vara reynist uppseld. Komi slík staða upp verður haft samband við viðskiptavin og boðin full endurgreiðsla. Bastel áskilur sér einnig rétt til að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.

3. Skilareglur og endurgreiðslur Viðskiptavinir hafa 30 daga til að skila vöru gegn því að hún sé ónotuð, óopnuð, í upprunalegum umbúðum og gegn framvísun kvittunar. Endurgreiðsla er framkvæmd á sama hátt og greitt var fyrir vöruna og nemur þeirri upphæð sem greidd var fyrir vöruna sjálfa.

Vinsamlegast athugið að sendingarkostnaður fæst ekki endurgreiddur. Viðskiptavinur ber kostnað og ábyrgð á endursendingu vöru þar til hún hefur borist okkur.

4. Fyrirvari Allar upplýsingar, verð og myndir á vefsíðunni eru birtar með fyrirvara um innsláttar- eða prentvillur og myndbrengl. Við áskiljum okkur rétt til að leiðrétta slíkar villur og afturkalla pantanir ef þörf krefur.

5. Lög og varnarþing Þessir viðskiptaskilmálar eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna þeirra skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.