Um okkur

Velkomin á Bastel Föndurkaffi! Hjá okkur í Garðabæ getur þú slakað á í notalegu umhverfi, notið gómsætra veitinga, og fengið útrás fyrir sköpunargáfuna með fjölbreyttu föndri.

Bastel Föndurkaffi er stofnað af okkur, Hönnu og Rannveigu, Garðbæingum með ástríðu fyrir handverki. Okkur fannst vanta stað í bænum fyrir fólk til að sameinast í sköpun og afslöppun. Hér geturðu málað, prjónað eða prófað nýtt föndur – eitthvað fyrir öll!

Við viljum skapa hvetjandi samkomustað fyrir Garðbæinga á öllum aldri. Við bjóðum upp á föndurverkefni á staðnum og föndurpakka til að taka með heim, ásamt kaffi, te, kökum og öðru góðmeti.

Við leggjum áherslu á að bjóða fjölbreytt úrval af föndri og kynnum reglulega nýjungar sem okkur langar sjálfum að prófa og vonandi þér líka. Úrvalið mótast af ýmsum getustigum ásamt því að bjóða uppá föndur í mismunandi verðflokkum. 

Hvort sem þú ert byrjandi eða með reynslu, komdu í Bastel Föndurkaffi og upplifðu föndur og góða stemningu!